Ábending umboðsmanns Alþingis um tilmæli stjórnvalda.
(1309007)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
15.10.2013 | 5. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Ábending umboðsmanns Alþingis um tilmæli stjórnvalda. Á fundinn komu Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis og Hafsteinn Dan Kristjánsson frá umboðsmanni Alþingis. Umboðsmaður fór yfir bréf sem hann sendi Alþingi til að vekja athygli á umfjöllun í tveimur álitum og lúta að notkun á hugtakinu ,,tilmæli af hálfu stjórnvalda og ábendingu til Alþingis um að með hliðsjón af réttaröryggissjónarmiðum verði þess gætt að hugtakið sé í lögum aðeins notað yfir óskuldbindandi tilmæli stjórnvalda til borgaranna. Þá svaraði hann spurningum nefndarmanna ásamt Hafsteini Dan. |